Til hamingju útskriftarnemendur
13.2.2010
Alls voru 129 kandídatar brautskráðir af fimm námsbrautum við hátíðlega athöfn í Háskólabíó þann 12. febrúar síðastliðinn. Við upphaf athafnarinnar ávarpaði Kristín Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri nemendur og gesti og fór yfir fjölbreytta starfssemi ársins hjá Endurmenntun.
Stór dagur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og ráðherra ferðamála hélt hátíðarræðu í tilefni af því að í fyrsta sinn voru leiðsögumenn brautskráðir af námsbrautinni Leiðsögunám á háskólastigi. Katrín óskaði öllum útskriftarnemum og fjölskyldum þeirra til hamingju með árangurinn. Hún sagði jafnframt í ræðu sinni að sem ferðamálaráðherra væri hún mjög stolt. Þetta væri stór dagur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi þar sem nú væri í fyrsta sinn verið að brautskrá leiðsögumenn á háskólastigi og framtíðin væri vissulega björt í ferðaþjónustunni.
Að lokum hélt Brynja Dís Björnsdóttir, kandídat úr Gæðastjórnun ávarp fyrir hönd nemenda.
Að ræðum loknum fengu kandídatar afhent skírteini. Námsbrautirnar fimm sem um ræðir eru Gæðastjórnun, Leiðsögunám á háskólastigi, Mannauðsstjórnun, Rekstrar- og viðskiptafræði og Verkefnastjórnun – Leiðtogaþjálfun.
Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur
Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi árangur og þau hlutu: Ingunn Þóra Ríkharðsdóttir í Mannauðsstjórnun, Tryggvi Jakobsson í Leiðsögunámi á háskólastigi, Guðmundur Ágúst Aðalsteinsson í Rekstrar- og viðskiptafræði. Í Gæðastjórnun voru tveir kandídatar með hæstu einkunn þær Brynja Dís Björnsdóttir og Björk Ólafsdóttir. Í Verkefnastjórnun – Leiðtogaþjálfun voru þrír kandídatar með hæstu einkunn: Jóhanna Helga Viðarsdóttir, Ágústa Gísladóttir og Ólína S. Grímsdóttir Laxdal.

Dúxarnir með Kristínu Jónsdóttur, endurmenntunarstjóra

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og ráðherra ferðamála hélt hátíðarræðu

Brynja Dís Björnsdóttir, kandídat úr Gæðastjórnun með ávarp fyrir hönd nemenda

Ragnheiður Gröndal söng tvö lög við undirleik Guðmundar Péturssonar

Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun

Gæðastjórnun

Leiðsögunám á háskólastigi

Mannauðsstjórnun

Rekstrar- og viðskiptafræði