Viðhorf til Endurmenntunar rannsakað af Félagsvísindastofnun HÍ

28.3.2011

Í síðari hluta febrúar tók Endurmenntun þátt í spurningarvagni hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands*. Fólk var spurt hvort það hefði jákvætt eða neikvætt viðhorf í garð Endurmenntunar Háskóla Íslands og hvort það hefði farið á námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum og þá hjá hvaða aðila.

Allir jákvæðir
Niðurstöðurnar leiddu m.a. í ljós að hver og einn einasti þeirra sem sótt höfðu  námskeið hjá Endurmenntun síðastliðna 12 mánuði eru jákvæðir gagnvart Endurmenntun. Einnig er ánægjulegt að segja frá því að yfir 90% allra þeirra sem tóku þátt í könnunni, óháð því hvort þeir höfðu sótt námskeið hjá okkur, voru jákvæðir gagnvart Endurmenntun.

Forystuhlutverk Endurmenntunar
Af þeim sem höfðu sótt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum er ljóst að Endurmenntun  er í fararbroddi í endur- og símenntun, þar sem tæplega þrefalt fleiri höfðu sótt námskeið hjá okkur en hjá öðrum sambærilegum fræðsluaðilum.

Við erum afar stolt af þessari niðurstöðu og lítum á hana sem hvatningu og áskorun til að halda áfram á sömu braut.

 


* Úrtakið var 1200 manns. Um var að ræða símakönnun og svarhlutfallið var 61,7%