Leiðsögunemar EHÍ á ferð um landið
5.10.2009
Nemendur í námsbrautinni Leiðsögunám á háskólastigi komu í síðustu viku úr sex daga námsferð um landið. Ferð þessi er hluti af lokamisseri leiðsögunemendanna og í henni kynntust þeir landinu undir styrkri stjórn kennara og reyndra leiðsögumanna. Auk þess fengu þau tækifæri til að spreyta sig og leysa hagnýt verkefni tengdu leiðsögustarfinu. Það voru þreyttir, en ánægðir nemendur, sem stigu úr rútunni að lokinni ferð sem kennarar og nemendur voru sammála um að hefði tekist afar vel. Nú stunda yfir 70 nemendur nám í leiðsögn erlendra ferðamanna við Endurmenntun Háskóla Íslands en með þessari námsbraut er í fyrsta sinn boðið upp á leiðsögunám á háskólastigi, með möguleika á fjarnámi.
Nokkrar myndir sem Siv Friðleifsdóttir, nemi í Leiðsögunáminu tók í ferðinni.

Hópurinn í Skaftafelli

Tilgátubær Eiríks Rauða í Haukadal í Dölunum

Haukur Dór Bragason sýnir hvernig sjá má að kletturinn er eins og tröll að bryðja steina í Vesturdal við Jökulsárgljúfur.

í Hljóðaklettum í Vesturdal við Jökulsá á Fjöllum