Verkfræðingar og tæknifræðingar í samstarf við Endurmenntun

5.10.2009

Gerður hefur verið tveggja ára samstarfssamningur við Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ), Tæknifræðingafélag Íslands (TFÍ) og Stéttarfélag verkfræðinga (SV) um símenntun. VFÍ og TFÍ eru heiðurssamstarfsaðilar Endurmenntunar þar sem þessi félög voru meðal stofnenda Endurmenntunar árið 1983.

Markmiðið með samningnum er að auka framboð af námskeiðum fyrir félagsmenn, vinna saman að kynningu þeirra og efla tengsl félaganna þriggja við Endurmenntun.
Félögin og Endurmenntun vinna saman að framboði námskeiða, framkvæmd þeirra og efnistökum. Síðastliðið vor var því gerð könnun meðal félagasmanna um þarfir þeirra til símenntunar og er verið að vinna úr þeim niðurstöðum og þær lagðar til grundvallar námskeiðsþróun. Samkvæmt samningnum standa félagsmönnum VFÍ, TFÍ og SV til boða sérstök afsláttarkjör af völdum námskeiðum Endurmenntunar.

Við hjá Endurmenntun væntum mikils af þessum samstarfssamningi og viljum efla tengslin við þennan faghóp enn frekar og sjáum fram á að geta unnið vel saman í framtíðinni að hag verk- og tæknifræðinga.

Nánari upplýsingar um félögin má finna á heimasíðum þeirra VFÍ, TFÍ og SV



Árni Björn Björnsson, framkvæmdastjóri félaganna og Kristín Jónsdóttir,
endurmenntunarstjóri við undirritun samningsins.