Matsfræði (Vor 2010)
Grunnnám 24 ein -Markaðsmat 50 ein- Kostnaðarmat 50 ein

Hvenær: 01.02.2010 - 01.06.2010

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Námsbrautin er ætluð verk- og tæknifræðingum, lögfræðingum, viðskiptafræðingum, byggingafræðingum, iðnfræðingum, löggiltum fasteignasölum og arkitektum. Auk þess er námið ætlað þeim sem hafa umfangsmikla reynslu af mannvirkjagerð og fasteignamarkaði og vilja afla sér frekari menntunar á þessu sviði.
Stúdentsprófs eða sambærilegs náms er krafist sem lágmarksinntökuskilyrða.
Framlengdur umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2010

Nánari upplýsingar hér 

 


Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar
- fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör
(Vor 2010)

Hvenær: 09.02.2010 - 15.12.2010

Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjafasamningum, ráðningu hönnuða, útboðum, gerð útboðsgagna, samningum við verktaka, fjármögnum verkefna og áhættugreiningu innan fyrirtækja og stofnanna. Námið hentar tæknifræðingum, verkfræðingum, arkitektum, landslagshönnuðum og lögfræðingum ásamt öðrum ráðgjöfum í skyldum fögum sem og verktökum, verkkaupum sem hyggjast tileinka sér þetta sérsvið.

Framlengdur umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2010

Nánari upplýsingar hér 

 


Verktaki eða launþegi - Að reikna laun í eigin atvinnurekstri -

Hvenær: 22.03.2010 - 22.03.2010

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vinna í eigin rekstri eða vinna fyrir aðra sem verktakar. Námskeiðið hentar einnig þeim sem starfa við bókhald eða sem fjármálastjórar. Ein. FLE: 4 Félaga- og skattaréttur.

Nánari upplýsingar hér 

 


Excel I - fjármál og rekstur

Hvenær: 22.03.2010 - 29.03.2010

Ætlað öllum þeim sem starfa með Excel í tengslum við fjármál og rekstur og langar að læra meira. Gert er ráð fyrir nokkurri færni í Excel, en farið er hratt yfir grunnatriði í upphafi námskeiðs.
Kennt er á Excel 2007.
Ein. FLE: 12 almennt.

Nánari upplýsingar hér 

 


Hugarkort: Verkfæri kennarans

Hvenær: 24.03.2010 - 24.03.2010

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur



Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

 


Arðsemismat verkefna - reiknilíkön í Excel

Hvenær: 07.04.2010 - 20.04.2010

Ætlað fjármálastjórum og sérfræðingum í fjármálum í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og fjármálafyrirtækjum.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

 


English for global finance & banking - International Banking, World Economics & Investments

Hvenær: 12.04.2010 - 17.05.2010

Ætlað þeim sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum fjármálaensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun. Námskeiðið fer fram á ensku.
This course is designed for intermediate learners and above who would like to improve their banking and financial English in the following three areas: International Banking, World Economics and Investments.

Nánari upplýsingar hér 

 


Matsreglur ársreikningalaga

Hvenær: 15.04.2010 - 15.04.2010

Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað þeim sem þurfa að leggja mat á upplýsingar í ársreikningum, t.d. vegna lánveitingar eða annarra viðskipta. Reiknað er með að þátttakendur séu vel læsir á ársreikninga, þ.e. hafi góðan skilning á eðli þeirra og formi. Ein. FLE: 4 Reikningsskil.

Nánari upplýsingar hér 

 


Íslenski þroskalistinn

Hvenær: 20.05.2010 - 20.05.2010

Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og uppeldisgreinum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 22.

Nánari upplýsingar hér 

 


Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum

Hvenær: 21.05.2010 - 21.05.2010

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar með börnum á leikskólaaldri og hefur lokið réttindanámskeiði í Íslenska þroskalistanum. Smábarnalistinn er frumsaminn og staðlaður þroskalisti til að meta mál- og hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 15 til 38 mánaða. Listinn er sjálfstætt framhald af Íslenska þroskalistanum.

Nánari upplýsingar hér 

 


Leiðsögunám á háskólastigi - einnig kennt í fjarnámi (Haust 2010)

Hvenær: 12.08.2010 - 01.06.2011

Leiðsögunám á háskólastigi er námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi.  Námsbrautin hefst í ágúst 2010 og lýkur í lok júní 2011 Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi. 

Inntökuskilyrði í námið eru:
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
- Gott vald á íslensku.
- Fullt vald á því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn. Standast þarf inntökupróf í tungumálinu.

Námið er viðurkennt sem aukagrein með ferðamálfræði svo og í hugvísindadeild Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar hér 

 


Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun (Haust 2010)

Hvenær: 30.08.2010 - 01.05.2011

Viðskiptaumhverfi nútímans kallar eftir fólki sem hefur færni til að taka þátt í og stjórna margvíslegum verkefnum. Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er fjölbreytt nám, ætlað öllum þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og í daglegu lífi.
Umsóknarfrestur er 1. júní 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS
- Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa
- Kynverund, siðfræði og samfélag
- Kynlíf og samtími

Hvenær: 01.09.2010 - 31.12.2011

Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar.
Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.


Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.

Nánari upplýsingar hér 

 


Fjölskyldumeðferð (Haust 2010)

Hvenær: 01.09.2010 - 30.05.2012

Í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og Diakonhjemmets Högskola í Noregi.

Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar. Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur: " Hafa tveggja til þriggja ára starfsreynslu á sviðinu " Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð " Vera starfandi á sviðinu á meðan á námi stendur " Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal.

Nánari upplýsingar hér 

 


Gæðastjórnun (Haust 2010)

Hvenær: 02.09.2010 - 01.05.2011

Námið er metnaðarfullt, krefjandi og hagnýtt fyrir þá sem vilja öðlast akademíska jafnt sem hagnýta þekkingu og færni á sviði gæðastjórnunar. Nemendur öðlast víðtæka þjálfun á öllum helstu sviðum gæðastjórnunar sem gerir þeim kleift að takast á við ný og krefjandi verkefni. Námið hentar vel þeim sem bera ábyrgð á gæðamálum fyrirtækja og stofnana eða hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi.
Umsóknarfrestur er 1. júní 2010.

Nánari upplýsingar hér 

 


Google í skólastarfi

Hvenær: 20.09.2010 - 27.09.2010

Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

 


Gerð viðskipta- og fjárhagsáætlana

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig í markvissri gerð viðskipta- og fjárhagsáætlana s.s. frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum, smærri fyrirtækjum og einstaklingum sem stunda eigin rekstur. Hentar sérstaklega þeim sem hafa hug á að sækja um styrki til verkefna hér heima og í útlöndum.

Nánari upplýsingar hér 

 


Excel II - fjármál og rekstur

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Ætlað öllum sem þurfa að vinna með mikið af gögnum eða setja upp líkön sem byggjast á sjálfvirkni, þ.e. fyrir alla í rekstrar-, vöru- og fjármálastjórnun og aðra sem hafa notað Excel en langar að læra meira.
Kennt er á Excel 2007. Ein. FLE: 12 Almennt.

Nánari upplýsingar hér 

 


Frádráttur frá tekjum af atvinnurekstri

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Ætlað öllum þeim sem sjá um bókhald eða uppgjör í fyrirtækjum eins og bókara, fjármálastjóra og endurskoðendur. Ein. FLE: 3 Félaga- og skattaréttur.

Nánari upplýsingar hér 

 


Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.

Nánari upplýsingar hér