Nám á meistarastigi


Neðangreind námskeið jafngilda námskeiðum á meistarastigi við deildir Háskóla Íslands. Þau má því fá metin til MS-prófs hjá viðkomandi deild sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun sér um skráningar nemenda í stök námskeið á meistarastigi. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með.

Þeir nemendur sem sækja um námskeið hjá Endurmenntun sækja sömu námskeið og þeir nemendur sem skráðir eru í meistaranám við Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um hvert og eitt námskeið er að finna í kennsluskrá Háskóla Íslands: Sjá hér.

Kennsla fer að öllu jöfnu fram á dagtíma en stundarskrár eru á vegum viðkomandi deilda, sjá nánar undir hverju námskeiði.

Nemendur HÍ ganga frá skráningum á námskeið í gegnum vefsvæði sitt í Uglunni.
Upplýsingar um umsóknir í framhaldsnám við HÍ má lesa hér


Námskeið í samstarfi við læknadeild


Námskeið í samstarfi við hagfræðideild


Námskeið í samstarfi við viðskiptafræðideild


Námskeið í samstarfi við hjúkrunarfræðideild

 

Námskeið í samstarfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild

Námskeið í samstarfi við uppeldis- og menntunarfræðideild