Hagnýtar upplýsingar fyrir nemendur


 

VEFSVÆÐI NÁMS


Moodle er námsumsjónarkerfi sem Endurmenntun notar fyrir nemendahópa sína. Í Moodle er haldið utan um og skipulögð samskipti kennara og nemenda og námsefni er miðlað. Á vefsvæði námsins í Moodle eru vistuð námskeiðsgögn, fyrirlestrar og upptökur námskeiða og hægt er að setja upp umræðuþræði og rauntímaspjall.
Kennarar geta sett inn leiðbeiningar og tilkynningar til nemenda auk verkefna. Nemendur geta nálgast upplýsingar um lesefni, námsáætlun, verkefnaskil, námsmat og fleira sem við kemur náminu. Moodle útgáfa Endurmenntunar er vistuð hjá Reiknistofnun HÍ.

NÁMSRÁÐGJÖF


Hjá Endurmenntun starfar námsráðgjafi sem veitir ráðgjöf vegna námsvals og aðstoðar nemendur með sértæka námserfiðleika. Námsráðgjafi er einnig með námstækninámskeið í upphafi náms þar sem meðal annars er rætt um tímastjórnun, skipulagningu, próftækni, prófundirbúning og stjórnun prófkvíða.
Sjá nánari upplýsingar hér

FJARNÁM

Forritið eMission er notað í upptökur á kennslustundum í þeim námskeiðum sem kennd eru í fjarnámi. EMission er á öllum kennslutölvum Endurmenntunar. Forritið er einfalt í notkun og tekur upp fyrirlestra kennara og allt sem fer fram á skjá tölvunnar.

Upptökur eru vistaðar á vefþjóni og vefsvæði námsins að kennslu lokinni. Nemendur geta því nálgast upptökurnar á vefsvæði námsins með hefðbundnum tölvubúnaði, hvort sem það er í heimahúsi eða á vinnustað. Upptökur eru ávallt aðgengilegar þátttakendum á námstímanum.
Nánari upplýsingar um fjarnám hjá Endurmenntun má fá með því að horfa á kynningarmynd á síðunni hér

EININGAKERFI


Hjá Endurmenntun er farið eftir ECTS einingakerfinu. ECTS stendur fyrir "European Credit Transfer and Accumulation System" og er notað sem staðall til þess að bera saman og meta námsárangur og frammistöðu nemenda. Námsmenn fá ákveðinn fjölda ECTS-eininga fyrir staðin fög og námsskeið. Eitt námsár jafngildir 60 ECTS-einingum, sem samsvara 1500-1800 klukkutímum í námi.
Sjá frekari upplýsingar um einingakerfið hér.


REGLUR OG STARFSHÆTTIR - PRÓFREGLUR


Hjá Endurmenntun gilda ýmsar reglur og starfshættir varðandi viðveru, einkunnir, kannanir, útskrift og próf.
Sjá nánari upplýsingar hér

GREIÐSLUKJÖR


Við upphaf náms er gefinn út reikningur fyrir heildarverði námsins.
Staðfestingargjald (50.000 krónur) dregst frá heildarverði og er óafturkræft.
Þeir sem ekki staðgreiða námið þurfa að semja um greiðslumáta áður en nám hefst. Hægt er að greiða með kortaláni til allt að 36 mánaða. Nemendum bjóðast einnig vaxtalaus kortalán til að hámarki 12 mánaða. Lántökukostnaður af slíkum lánum miðast við fjölda mánaða. Greiða þarf lántökukostnað af vaxtalausum lánum í heild sinni við undirritun lánasamnings.
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður þótt nemandi hætti námi áður en námstíma lýkur.