Nám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala
Áætlað er að Endurmenntun Háskóla Íslands bjóði upp á réttindanám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala haustið 2012.
Beðið eftir frumvarpi Alþingis Fyrir Alþingi liggur hins vegar frumvarp til nýrra heildarlaga um sölu fasteigna og skipa og þar á meðal er lagt til að breyting verði gerð á reglum um menntun fasteignasala. Á meðan óvíst er hvort frumvarpið nái fram að ganga er ekki hægt að taka ákvörðun um hvenær námið hefst að nýju. Þinglok verða í maí og biðjum við því áhugasama um að senda okkur póst á netfangið endurmenntun@hi.is og við verðum í sambandi um mánaðarmótin maí-júní.
Reglugerðir og prófnefnd: Um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala gilda lög nr. 99/2004, um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu. Prófnefnd löggiltra fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala, sem viðskiptaráðherra skipar, hefur á hendi forstöðu og ábyrgð á framkvæmd námskeiða og prófa fyrir þá sem vilja þreyta prófraun til að öðlast löggildingu til að hafa milligöngu um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. Nefndinni er heimilt, með samþykki ráðherra, að semja við háskóla um framkvæmd námskeiðs og prófa, en um þau efni gilda ákvæði reglugerðar nr. 837/2004, sbr. 112/2009 um námskeið og prófraun til að öðlast löggildingu til sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.
Markmið námsins eru: - Að þátttakendur öðlist þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að standast próf til löggildingar um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa. - Að bjóða upp á metnaðarfullt, krefjandi, starfstengt og hagnýtt nám. - Að þátttakendur öðlist fræðilega þekkingu og faglega kunnáttu og hæfni til að takast á við alla þætti innan fasteigna-, fyrirtækja og skipasölu.
Nánari lýsing
|
|

Kennsla / Umsjón:
Upplýsingar um námið veitir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námstjóri EHÍ í síma 525-4909, ega@hi.is
Tímabil: 1.9.2012 -
Hvenær: Kennt er einn virkan morgun í viku kl. 08:15-10:00/11:00 og á laugardögum fjórar kennslustundir (ýmist fyrir eða eftir hádegi).
Verð: Nánar auglýst síðar.
Kennarar:
|