Innlit í heim óperunnar
Margir kannast við nokkrar frægar óperuaríur þegar þeir heyra þær, en vita ekki hvað þær heita né úr hvaða óperum þær koma. Flestir þekkja til dæmis aríu Næturdrottningarinnar eða Nessun dorma sem Pavarotti gerði að sívinsælu popplagi á heimsmeistarakeppninni í fótbolta árið 1990, en hvaðan koma þessar aríur og um hvað fjalla þær? Á námskeiðinu verða leiknir nokkrir af þekktustu óperusmellum allra tíma, efni þeirra kynnt, einnig hvaða hlutverk og raddgerðir koma við sögu. Námskeiðið er miðað við þá sem hafa lítið kynnt sér yndisveröld óperunnar, en eru forvitnir og langar að fá svolitla innsýn í hana.
|
|
Kennsla / umsjón:
Bergþór Pálsson, söngvari
Hvenær: Mið. 29. feb. kl. 20:15 - 22:15
Verð: 5.900 kr.
Hvar: Endurmenntun, Dunhaga 7.
|