Jazzbíó: Billie Holliday og Chet Baker
Í samstarfi við Bíó Paradís
Jazzbíónámskeiðið á haustmisseri lukkaðist afar vel, en þá leiddi hinn margrómaði jazzari, Sigurður Flosason, þátttakendur inn í jazzheima í gegnum myndirnar Bird og Round Midnight. Nú bjóðum við nýtt jazzbíónámskeið með jazztónlist við allra hæfi og heimsklassa drama. Bíómiðar eru innifaldir í námskeiðsverði.
Skráningarfrestur er til 13. mars 2012.
Á námskeiðinu verður fjallað um söngkonuna Billie Holiday og trompetleikarann Chet Baker. Myndirnar sem teknar verða til skoðunar eru annars vegar Lady sings the blues(1972) eftir Sidney J. Furie með Diana Ross í hlutverki Billie Holiday. Hins vegar verður sýnd listræna heimildamyndin Let’s get lost frá 1988. Í henni er Chet Baker sjálfur í aðalhlutverki, en leikstjóri er Bruce Weber.
Hér verður fjallað um frábæra listamenn sem báðir nutu og njóta enn fádæma vinsælda. Bæði áttu þó erfiða ævi og litríkt lífshlaup.
Námskeiðið fer þannig fram að á þriðjudagskvöldi er fjallað um annan listamanninn (lífshlaup, hlustun og myndbrot) og kvöldið eftir er farið í Bíóparadís og horft á viðkomandi kvikmynd. Viku síðar er sami háttur hafður á um hinn listamanninn. Stuttar umræður verða í lok hvorrar kvikmyndasýningar.
|
|
Kennsla / umsjón:
Sigurður Flosason, yfirkennari jassdeildar Tónlistarskóla FÍH
Hvenær: Þri. 20. mars kl. 20:15 - 22:15, Dunhaga 7 Mið. 21. mars kl. 20:00, Bíó Paradís við Hverfisgötu Þri. 27. mars kl. 20:15 - 22:15, Dunhaga 7 Mið 28. mars kl. 20:00, Bíó Paradís við Hverfisgötu
Verð: 13.900 kr.
Hvar: Endurmenntun, Dunhaga 7.
|