Örlög og ástir á þýsku: þjálfun í þýsku talmáli og þýskum kurteisisvenjum á nýstárlegan hátt
Í samstarfi við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, Hugvísindasviði HÍ.
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa þýskt talmál og þýskar kurteisisvenjur. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja æfa sig í þýsku talmáli til þess að vera betur í stakk búnir til að nota þýsku í samskiptum sínum við t.d. þýskumælandi viðskiptavini. Á námskeiðinu er farin ný leið til þess að þjálfa talmálið, þar sem þátttakendur fylgjast daglega með framhaldsþætti í þýska sjónvarpinu. Efni þáttanna er síðan notað til þess að æfa þýskt talmál. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi nokkurn grunn í þýsku.
Þátttakendur námskeiðsins þurfa að hafa aðgang að vefsíðu þýsku sjónvarpstöðvarinnar www.ard.de. Einnig er unnt að horfa á þættina í þýska sjónvarpinu. Mjög auðvelt er að horfa á þættina í gegnum heimasíðuna og verður þátttakendum sýnt það í upphafi námskeiðsins.
|
|
Kennsla / umsjón:
Oddný G. Sverrisdóttir, prófessor í þýsku við hugvísindasvið Háskóla íslands.
Hvenær: apríl 2012. Nánari dagsetningar síðar. 8klst/12 kennslust.
Verð: 34.900 kr.
Hvar: Endurmenntun, Dunhaga 7.
|